Ólafur Hafsteinn Jónsson.
Fréttir  |  30. apríl 2009

Fásinna að sjálfstæðismenn í Árborg hafi unnið gegn Árna

Ólafur Hafsteinn Jónsson, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Árborg, afneitar með öllu í yfirlýsingu hér á Sunnlendingi að hann hafi tekið þátt í atlögu að Árna Johnsen þar sem kjósendur hafi verið hvattir til að strika yfir nafn Árna í kosningunum. „Það er algjör fásinna að við Sjálfstæðismenn í Árborg höfum staðið fyrir skipulögðum útstrikunum á Árna Johnsen Alþingismanni,“ segir í yfirlýsingunni.

Í viðtali við héraðsfréttablaðið Fréttir í Vestmannaeyjum, sem kom út í gær, ber Árni flokksfélaga sína í Árborg mjög þungum sökum og kennir þeim um að 17% kjósenda Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi hafi strikað yfir nafn hans í Kosningunum. „...ég veit að það var sett af stað batterí á Árborgarsvæðinu mér til höfuðs, bæði af ungliðum og eldri flokksmönnum. Þau hringdu út, sögðu fólki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en strika mig út,“ segir Árni.

Sömu sökum ber Árni þá frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem koma af Árborgarsvæðinu. „Verst þykir mér þegar frambjóðendur á listanum á Árborgarsvæðinu taka þátt í þessu,“ segir Árni Johnsen í viðtalinu.

Ólafur Hafsteinn Jónsson, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Árborg, segir Árna vega mjög ómaklega að sjálfstæðismönnum í Árborg með ásökunum sínum. „Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir mig, sem formann fulltrúaráðs Árborgar, hvort maður á að leggja heiður sinn að veði til þess að vinna fyrir slíka menn,“ segir Ólafur.

Hér er yfirlýsing formanns fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Árborg.