Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Árni Johnsen.
Fréttir  |  30. apríl 2009

Árni Johnsen sanni ásakanir sínar

Stjórn Sjálfstæðisfélagsins Óðins á Selfossi og stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Árborg koma saman í kvöld þar sem meðal annars verður fjallað um ásakanir Árna Johnsen þess efnis að sjálfstæðismenn í Árborg hafi staðið fyrir útstrikunarherferð gegn honum í aðdraganda kosninganna. Ólafur Hafsteinn Jónsson, formaður fulltrúaráðs, segir í samtali við Sunnlending.is að líkleg niðurstaða fundarins verði að Árni Johnsen verði krafinn skýringa og farið fram á að hann færi sönnur á staðhæfingar sínar.

Ólafur segir sjálfstæðismenn í Árborg bæði sára og reiða. „Það hefur fjöldinn allur af fólki haft samband við mig og fólk er reitt, ekki síst þeir sem lögðu á sig mikla vinnu í kosningabaráttunni. Mönnum finnst Árni koma í bakið á sér með þessum ásökunum,“ segir Ólafur Hafsteinn Jónsson.