Fleiri myndir með þessari frétt (1)



Arndís Soffía Sigurðardóttir skipaði 2. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi.
Fréttir  |  03. maí 2009

Vinstri grænir taka upp hanskann fyrir Árna Johnsen

Arndís Soffía Sigurðardóttir, verðandi varaþingmaður Vinstri grænna í Suðurkjördæmi, tekur upp hanskann fyrir Árna Johnsen í pistli hér á Sunnlendingi.is. Árni hefur sakað sjálfstæðismenn í Árborg um að standa að baki útstrikunarherferð gegn sér í aðdraganda kosninganna með þeim afleiðingum að hann féll niður um eitt sæti á lista Sjálfstæðisflokksins; úr öðru sæti í það þriðja.

Arndís Soffía segir að einhverjir hafi staðið fyrir úthringingum þar sem kjósendur voru hvattir til að strika yfir nafn Árna Johnsen en hún segist ekki vita hvort það hafi verið sjálfstæðismenn. „Ekki veit ég hverjir stóðu fyrir úthringingum í Árborg og ég ætla ekki að benda á neinn í því samhengi en við Vinstri græn fengum ábendingar frá ungum kjósendum í Árborg sem höfðu fengið símhringingar þar sem hvatt var til þess að strika yfir nafn Árna Johnsen hvort sem það kysi Sjálfstæðisflokkinn eða ekki,“ segir Arndís Soffía meðal annars í pistlinum.

Pistilinn í heild má lesa hér.