Menning | 12. maí 2009
Norskt menningarkvöld í Hveragerði
Annað kvöld klukkan 20, miðvikudagskvöld, hefst norskt menningarkvöld í bókasafninu í Hveragerði þar sem Tiril Myklebost mun segja frá Knut Hamsun, auk þess sem lesið verður úr bókum hans bæði á íslensku og norsku.
Við sama tækifæri verður ljósmyndasýning Ellenar Fodstad skoðuð og Ragna Hjartardóttir mun syngja nokkur lög við undirleik Harðar Friðþjófssonar.
