Flóamenn leita hraustra manna og kvenna
Flóamenn eru farnir að undirbúa árlega sumarhátíð sína, Fjör í Flóa, en hátíðin verður með svipuðu sniði og í fyrra. Einn af hápunktum hátíðarinnar er reipitogskeppni þar sem hraustir Flóamenn og konur etja kappi. Strangar reglur eru í reipitogskeppninni og reynt er að leyna fram á síðustu stundu hverjir skipa liðin.
Reipitogsreglurnar eru þannig:
1. Reiptogskeppni skal haldin milli tveggja liða. Það lið sem fyrr vinnur tvær keppnir er sigurvegari.
2. Hvort lið skal skipað átta einstaklingum. Þar af a.m.k. tvær konur.
3. Í hverju liði þurfa að vera a.m.k. tveir einstaklingar úr „gömlu hreppunum“ - Gaulverjabæjarhreppi, Hraungerðishreppi og Villingaholtshreppi.
4. Stjórn Umf. Vöku tilnefnir tvo höfðingja. Þeir eru í forsvari fyrir sitt lið og bera ábyrgð á því að manna sitt lið. Æskilegt er að höfðingjar reyni að halda því leyndu hverjir liðsmenn þeirra eru.
5. Liðsmenn þurfa að eiga lögheimili og fasta búsetu í Flóahreppi.
6. Stjórn Umf. Vöku tilnefnir dómara keppninnar.
7. Sigurvegarar keppninnar bera titilinn „Hreystimenni Flóahrepps“ í eitt ár og fá að auki verðlaunagrip til eignar.
