Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Frá Kirkjubæjarklaustri.
Menning  |  18. maí 2009

Kaffihús í kaupfélaginu og sofið í sláturhúsinu

Í Morgunblaðinu í dag er sagt frá tveimur vöskum mönnum sem þessa dagana vinna baki brotnu í húsakynnum sláturhússins á Kirkjubæjarklaustri við að koma þeim í not fyrir ferðaþjónustu. Kaffihús verður opnað í gömlu kaupfélagsversluninni og fyrsti áfangi gistihúss í sláturhúsinu í næsta mánuði. Áfram ætla þeir að halda og Kirkjubæjarstofa hefur áhuga á að koma þar upp sýningu um Skaftárelda og Eldmessuna. Það eru lyfjafræðingur og húsasmíðameistari sem standa í þessum stórræðum.

Sláturfélag Suðurlands slátraði síðast á Kirkjubæjarklaustri haustið 2004 en sláturhús hafði þá verið rekið á staðnum í sextíu ár. Jón Grétar Ingvarsson lyfjafræðingur og Bragi Gunnarsson húsasmíðameistari keyptu húsin fyrir tveimur árum í þeim tilgangi að koma þar upp menningartengdri ferðaþjónustu. „Það er líklega mér að kenna, ég er héðan,“ segir Bragi í samtali við blaðamann Morgunblaðsins þegar þeir félagarnir eru spurðir að því hvernig þetta verkefni hefði komið til og Jón Grétar tekur upp þráðinn: „Við höfum oft rætt um að gaman væri að fara saman út í eitthvað nýtt. Þegar Bragi kom með þær upplýsingar að sláturhúsið væri til sölu ákváðum við að kaupa.“