Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Pissað í fjöruferð. Þema sýningarinnar er börn í öllum sínum yndislegu myndum.
Menning  |  18. maí 2009

Sunnlendingum boðið að taka þátt í ljósmyndasýningu

Ljósmyndasýningin Á myndina vantar? verður haldin í Kjarnanum á Selfossi dagana 21. til 24. maí en sýningin er liður í fjölskylduhátíðinni Vor í Árborg. Öllum Sunnlendingum er boðið að taka þátt í sýningunni en þemað er börn.

Í tilkynningu segir að það sé áhugahópur um ljósmyndun sem stendur að baki sýningunni en allir Sunnlendingar mega þar hengja upp myndir sínar. „Eina skilyrðið er að myndin - myndirnar séu af börnum. Þær mega vera gamlar, nýjar, í öllum stærðum og gerðum, innrammaðar, fóm, striga o.s.frv. Þátttakan er öllum að kostnaðarlausu. Vonast er til að sem flestir taki þátt,“ segir orðrétt í tilkynningunni.

Klukkan 10 fimmtudagsmorguninn 21. maí ætlar hópurinn að koma saman til að hengja myndirnar upp í Kjarnanum og er þess vænst að sem flestir taki þátt.