Söngur og gamanmál í Hveragerðiskirkju
Klukkan 17 á uppstigningadag, fimmtudaginn, verður blásið til skemmtunar með söng og gamanmálum í Hveragerðiskirkju þar sem fram koma Yfirliðsbræður - Óskar Pétursson, kenndur við Álftagerði og Örn Árnason, kenndur og ókenndur tengdur Spaugstöfunni. Þeim til halds og trausts verður Jónas Þórir sem alla jafnan er kenndur við píanó. Samstarf þessara manna er ekki nýtt af nálinni en þeir hafa þó ekki komið fram áður undir heitinu Yfirliðsbræður.
Söng og grínskemmtun þessi er hluti af langri tónleikaröð þeirra félaga á landsvísu en þar fylgja þeir eftir geisladiski þar sem þeir syngja lög eftir Everly Brothers við texta sem þeir hafa samið sjálfir.
Í tilkynningu segir að heitið Yfirliðsbræður sé bein tilvísun í Everly Brothers og einnig megi það koma fram að þeir félagar leggi þá meiningu í orðið að margar miðaldra konur falli hreinlega í yfirlið þegar þeir stíga á svið.
