Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Gunnar Þórðarson og Kór FSu.
Menning  |  22. maí 2009

Vel heppnaðir tónleikar í Iðu

Um 300 manns mættu á tónleika Kórs Fjólbrautaskóla Suðurlands og hljómsveitarinnar Karma í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi í gærkvöldi. Flutt voru þekkt og vinsæl lög eftir Gunnar Þórðarson og kom hann fram á tónleikunum ásamt Engilberti Jensen söngvara.

Stjórnandi Kórs FSu er Stefán Þorleifsson og var hann ánægður með tónleikana. „Þetta voru mjög vel heppnaðir tónleikar og áhorfendur nutu þess að hlusta á landsþekkt lög Gunnars Þórðarsonar í nýjum búningi,“ sagði Stefán í samtali við Sunnlending.

Tónleikarnir voru hluti af árlegri fjögurra daga menningarhátíð sem nú stendur yfir í Árborg og nefnist Vor í Árborg.