Kristín H. Kristjánsdóttir, frá Selfossi, varð þrefaldur Íslandsmeistari í fitness árið 2007 en meðfylgjandi myndir voru teknar af henni við æfingar í árslok 2006. Þjálfari hennar og æfingasystir, Anna Bella, pýndi Kristínu áfram af myndugleik enda dugar ekkert hálfkák þegar skara skal fram úr.
Kraftmiklar og glæsilegar dömur báðar tvær.
Og upp fór hún . . og það oft.
Mikinn aga þarf til að ná góðum árangri í fitness og Kristín æfði oft á dag þegar mót voru framundan.
Svona kögglar myndast ekki á einni nóttu.
Anna Bella hvatti Kristínu til dáða en passaði jafnframt upp á að hún færi sér ekki að voða.
Motivo er gjafavöruverslun á Selfossi sem býður upp á vandaða gjafavöru í miklu úrvali frá heimsþekktum framleiðendum. Auk gjafavöru býður verslunin upp á ljós og húsgögn og þar eru ennfremur til sölu Ásta d-sign vörurnar sem hannaðar eru af öðrum tveggja eigenda verslunarinnar. Motivo er með glæsilega netverslun þar sem hægt er að skoða og versla allar vörur sem í boði eru.