Smjörklípa ráðlausrar ríkisstjórnar
Nú hefur ráðlausa ríkisstjórnin eytt 10 dögum (lagað) í að ræða um ESB aðild. Skýrt var í kosningabaráttunni að VG og Samfylking eru á öndverðum meiði í málinu. Samstarf flokkanna byggir því augljóslega ekki á málefnasamstöðu. Komandi þing mun að öllum líkindum snúast um þetta mál.
Þeir sem ekki eru innilokaðir í Norrænahúsinu á samningafundum átta sig á því að þau málefni sem brenna á hinum venjulega Íslendingi snúast ekki um aðild að ESB. Nauðsynlegt er að grípa til aðgerða til að koma atvinnulífinu í gang, það er áhrifaríkasta leiðin til að koma heimilunum til aðstoðar. Það er því með öllu óskiljanlegt að svo miklu púðri sé á þessum tímapunkti eytt í vangaveltur um aðildarumsókn nema ef vera skyldi tilraun til að slá ryki í augu fólks vegna þess að flokkarnir sem sitja við samningaborðið koma sér heldur ekki saman um ráð vegna efnahagslægð arinnar. Einhverntíman hefði einhver kallað þetta smjörklípu.
Við Íslendingar stöndum frammi fyrir því verkefni að endurreisa efnahag landsins. Við það verkefni er þörf á hugrökku fólki sem leggur fram lausnir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt frá stofnun flokksins sett atvinnumál í forgang enda er ljóst að ef atvinnulífinu gengur vel þá gengur heimilunum vel.
Atvinnuleysi er ekki þolandi og við sjálfstæðismenn munum aldrei sætta okkur við að það verði viðvarandi. Sjálfstæðisflokkurinn lagði í kosningabaráttunni fram tillögur sem eru raunhæf leið til að skapa fleiri störf. Það gerum við með því að byggja upp í orkufrekum iðnaði, nýta auðlindir landsins og skapa eðlileg skilyrði fyrir rekstur og atvinnulíf. Í kringum orkufrekan iðnað, öflugan landbúnað og sterkan sjávarútveg skapast fjöldi afleiddra starfa hjá tækni- og þekkingarfyrirtækjum og einyrkjum auk tækifæra í nýsköpun.
Barátta okkar Íslendinga næstu mánuði felst í því að skapa fleiri störf í landinu. Evrópusambandið mun ekki koma okkur til bjargar, við þurfum að gera þetta sjálf. Það verður erfitt og mun taka á. Framtak og framsýni einstaklinganna er sterkasta vopnið í þeirri baráttu.
Unnur Brá Konráðsdóttir
