Ný ríkisstjórn - Nýir tímar
Í upphafi þessarar viku var mynduð ný ríkisstjórn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur, Samfylkingarkonu sem hefur lengsta þingreynslu þeirra sem nú sitja á Alþingi. Næst lengstu þingreynsluna á Steingrímur J. Sigfússon sem er einmitt leiðtogi hins stjórnarflokksins, Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs. Þetta er söguleg stund því þetta er í fyrsta sinn sem hrein vinstristjórn nær meirihluta í kosningum á Íslandi. Reyndar hafa stjórnmálafræðingar, og þeir sem um stjórnmál fjalla, átt í erfiðleikum með að tala um hægri- og vinstristjórnir, því þau hugtök hafa verið á reiki í þeim hræringum sem átt hafa sér stað á innlendum og erlendum vettvangi, með falli kommúnismans og nú með falli frjálshyggjukapítalismans. Áður hafa flest samvinnufélög á Íslandi liðið undir lok, þó enn séu eftir nokkur öflug samvinnufélög í eigu bænda og annarra félagsmanna s.s. Sláturfélag Suðurlands og MS. Nokkur kaupfélög lifa enn s.s. kaupfélag Suðurnesja sem rekur t.d. Strax verslunina hér á Flúðum.
Mörgum íbúum landsins sem eiga í fjárhagserfiðleikum vegna atvinnumissis og stórhækkaðra lána hefur þótt hægt ganga að mynda hina nýju ríkisstjórn. Það hefði verið táknrænt ef hún hefði tekið til starfa á frídegi verkamanna 1. maí. og undirstrikað með því hinn mikla árangur sem baráttumenn fyrir bættum hag verkamanna og almennings hafa náð fram í gegnum áratugina. Saga frumkvöðlanna og kyndilbera verkalýðsbaráttunnar um bættan hag almennings er merkileg saga sem ávallt ber að virða.
Verkefni þessarar ríkisstjórnar eru ærin og ekki útséð með hvaða hætti hún nær utan um þau tröllauknu verkefni sem hennar bíða. Mörgum okkar sem hafa fylgst með stjórnarmyndunni í fjarlægð, finnst gríðarlegur tími hafi farið í umræður og tilraunir til þess að ná sáttum um það hvort Ísland eigi að bjóða ESB maddömunni upp í dans og kanna hvaða „mann“ hún hefur að geyma. Við óskum nýrri ríkisstjórn alls hins besta um leið og við óskum nýkjörnum alþingismönnum velfarnaðar í störfum.
Vonandi tekst að ná samkomulagi um raforku- og flutningskostnað raforku til garðyrkjubænda en þau mál brenna mjög á okkar samfélagi um leið og nauðsynlegt er að horfa til heimila, bænda, fyrirtækja og sveitarfélaga en þau eru gjarnan mjög stórir atvinnurekendur. Landbúnaðarframleiðslan er gjaldeyrissparandi um leið og hann heldur uppi mikilli atvinnu í þéttbýli t.d. hér á Suðurlandi.
Ísólfur Gylfi Pálmason
