Hornafjörður | 24. mars 2009 | hornafjordur.is
Leiktækjum komið fyrir í nýju sundlauginni
Iðnaðarmenn á Hornafirði vinna nú hörðum höndum við frágang á nýrri sundlaug bæjarins. Í sundlauginni verður nokkurs konar ævintýraland fyrir yngstu sundgestina en um er að ræða þrjú leiktæki: Trúð sem veitir vatni út um augu, nef, eyru og hatt, rennibraut fyrir yngri börnin sem er um 80 cm há og snák sem veitir vatni út um hlið sér. Starfsmenn Króm og hvítt á Höfn sjá um að setja leiktækin upp og tengja við dælubúnað sem staðsettur er í kjallara.
Málningarþjónusta Hornafjarðar hefur nýverið lokið við að mála heita potta en annar potturinn verður með nuddi en hinn án nudds.
Nú vinna málararnir að því að mála vaðlaugina og rennuna umhverfis laugina. Verkið er á lokastigi en á næstu dögum skýrist hvenær hægt verður að opna laugina.
Höf: -HIE-
