Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Áldósir í endurvinnslu.
Bláskógabyggð  |  31. mars 2009

Sex ára sorphirðusamningur

Sveitarfélöginn Blásskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur hafa óskað eftir tilboðum í sorphirðu í sveitarfélögunum tveimur. Í boði er sex ára samningur; frá 1. september 2009 - 31. ágúst 2015.

Útboðsgögn eru afhent hjá Verkfræðistofu Suðurlands gegn 5.000 króna skilagjaldi. Tilboðum skal skila til Verkfræðistofu Suðurlands, Austurvegi 3-5 Selfossi, fyrir klukkan 14 miðvikudaginn 13. maí 2009 en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.