Íþrótta- og tómstundastyrkir í Árborg
Íþrótta- og tómstundanefnd Árborgar hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs í sveitarfélaginu á árinu 2009. Umsóknum ber að skila eigi síðar en 24. apríl.
Umsækjendur geta verið einstaklingar eða félagasamtök í Sveitarfélaginu Árborg sem stunda íþrótta- og tómstundastarfsemi eða hyggjast standa fyrir íþrótta- og tómstundaviðburðum í sveitarfélaginu. Undanskilin þessu eru þau félagasamtök sem hafa afreks- og styrktarsjóði í gildandi þjónustusamningi við sveitarfélagið. Heimilt er að veita aðilum utan sveitarfélagsins styrki til að standa fyrir íþrótta- og tómstundaviðburðum í Sveitarfélaginu Árborg en alla jafnan munu aðilar innan sveitarfélagsins ganga fyrir styrkveitingum
Hægt er að sækja um verkefnastyrki sem ætlaðir eru til einstakra afmarkaðra verkefna
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást afhent á skrifstofu Sveitarfélagsins Árborgar og eru þau einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins. Úthlutun styrkja fer fram einu sinni á ári í maí
Nauðsynlegt er að með umsóknum fylgi ítarleg kostnaðaráætlun um verkefni sem sótt er um styrk til og skilagrein að því loknu skal send til íþrótta- og tómstundafulltrúa Árborgar.
Umsóknir vegna úthlutunar árið 2009 þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Árborgar, Ráðhúsinu, Austurvegi 2 á Selfossi, fyrir 24. apríl nk. merkt UMSÓKN UM ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTYRK.
Nánari upplýsingar veitir Bragi Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi, í síma 480-1900 eða á netfangið bragi@arborg.is.
