Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Strætó í Árborg.
Árborg  |  02. apríl 2009

Útboð á almenningssamgöngum í Árborg

Sveitarfélagið Árborg hefur auglýst eftir tilboðum í akstur vegna almenningssamgangna innan marka Sveitarfélagsins. Um að ræða akstur milli Eyrarbakka, Selfoss og Stokkseyrar og innanbæjar í byggðarkjörnunum.

Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, frá og með deginum í dag, fimmtudeginum 2. apríl, gegn 5.000 kr. greiðslu.

Óski bjóðendur frekari upplýsinga skulu þeir gera það með skriflegri fyrirspurn eða í tölvupósti  til bæjarritara, asta@arborg.is, eigi síðar en 14. apríl. Skrifleg svör verða send öllum þeim aðilum sem útboðsgögn fá afhent.

Tilboðum skala skilað í Ráðhús Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, fyrir kl. 14 þriðjudaginn 21. apríl 2009, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tilboðum skal skilað í lokuðu umslagi þannig merktu:
Sveitarfélagið Árborg
Útboð aksturs vegna almenningssamgangna innan Árborgar

Frestur til að taka tilboði er 10 dagar frá opnun tilboða og eru bjóðendur bundnir af tilboðum sínum til þess tíma.