Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Hveragerði  |  21. maí 2009

Garðsláttur hjá eldri borgurum og öryrkjum

Í sumar mun Hveragerðisbær bjóða þeim eldri borgurum og öryrkjum sem ekki geta séð sjálfir um garðslátt upp á fjóra fría garðslætti yfir sumarið. Sú breyting er á þjónustunni frá því í fyrrasumar að nú er garðsláttur eingöngu í boði fyrir þá sem ekki geta séð um slátt sjálfir sökum heilsuleysis.

Þeir sem hafa þörf fyrir þjónustuna sækja um það hjá Söndru Guðmundsdóttur forstöðumanni félagslegrar heimaþjónustu í síma 483-4000. Líkt og undanfarin sumur sér Úlfar Jón Andrésson um sláttinn og er síminn hjá honum 693-4714.