Loftmynd af Árborg hefur verið sett inn á heimasíðu Árborgar og er hana meðal annars að finna undir upplýsingar/götukort. Hægt er að stækka myndina og skoða þannig afmarkaða hluta sveitarfélagsins og með þeim hætti getur hver og einn húseigandi skoðað sitt eigið hús úr lofti.