Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Árborg  |  16. júní 2009

17. júní á Selfossi

Björgunarfélag Árborgar annast framkvæmd 17. júní hátíðarhaldanna á Selfossi en hátíðarhald verður að mestu með hefðbundnu sniði. Dagskráin hljóðar þannig:

10:00 Fánaathöfn við Ráðhúsið.
10:00-12:00 Björgunarmiðstöð Árborgar, til sýnis auk tækjakostar Björgunarfélags Árborgar. Kassaklifur í gangi og myndasýning.

Opið hús hjá Lögreglunni á Selfossi. 10:00-12:00 Brunavarnir Árnessýslu og Sjúkraflutningar HSu með sýningu við Hótel Selfoss.10:00-12:00 Hópakstur fornbíla úr Bifreiðaklúbbi Selfoss. Þeir munu aka um götur bæjarins og stoppa á vel völdum stöðum.

10:30 Klippivinna Brunavarna Árnessýslu og Sjúkrafl utninga Hsu sýnd við Hótel Selfoss.

11:30 Slökkvibílar Brunavarna Árnessýslu mynda stóran vatnsvegg á bökkum Ölfusár.

12:00-15:00 Bifhjólaklúbburinn Postularnir keyra með börnin á planinu við bílasölu Toyota. Aksturinn verður í boði Toyota.

13:00-16:00 Félagar úr Flugklúbb Selfoss með útsýnisfl ug með hefðbundnu sniði frá Selfossfl ugvelli ef veður leyfi r.

12:40-13:00 Hátíðarsamkoman sett í Selfosskirkju – stutt helgistund.

13:15 Skrúðganga frá Selfosskirkju. Gengið Kirkjuveg, Eyraveg, Austurveg, Reynivelli og Sólvelli að íþróttahúsi Vallaskóla. Skátar og Lúðrasveit ásamt hestamönnum- fara fyrir göngunni.

13:45 - 15:30 Hátíðardagskrá í íþróttahúsi Sólvallaskóla. Lúðrasveit Selfoss, Fjallkonan og fánahylling. Hátíðarávarp. Dansatriði frá Fimleikadeild UMFS. Atriði frá Götuleikhúsinu. Skítamórall heldur uppi fjörinu. Jón Bjarnason kynnir. Handknattleiksdeild UMFS verður með Orkuboltann meðan á hátíðardagskránni stendur.

14:30 Bikarleikur á Selfossvelli, UMFS Selfoss spilar við Hött frá Egilsstöðum.

15:30-17:30 Frjálsíþróttadeild UMFS stendur fyrir hátíðarkaffi í Odda, aðalbyggingu Fjölbrautaskóla Suðurlands.

15:30-17:30 Bílar, torfærubílar og sprell á planinu við Odda. Karamellur úr lofti, andlitsmálun, kassaklifurkeppni, sýning á fjallabjörgun, ratleikur fyrir börnin, atriði frá ævintýrahópnum og ýmsar þrautir.

19:00-21:00 Tónleikar fyrir 14 ára og yngri í Zelsíuz. Hljómsveitir úr Árborg troða upp.

21:30-23:30 Tónleikar fyrir 15 ára og eldri í Zelsíuz. Hljómsveitir úr Árborg troða upp.

Fimleikadeild UMFS mun sjá um blöðru, sjoppu og candyflosssölu. Salan hefst í íþróttahúsi Vallaskóla kl. 10 Einnig verða stelpur frá fimleikadeildinni á helstu hátíðarsvæðum bæjarins með blöðrur til sölu. Sundlaug Selfoss verður opin frá 10:00 – 18:00