17. júní í Þorlákshöfn
Íbúar Ölfuss halda 17. júní hátíðlegan á morgun líkt og aðrir landsmenn. Í Þorlákshöfn verður boðið upp á skipulagða dagskrá frá klukkan 9 og fram á kvöld.
Þjóðhátíðardagskrá í Þorlákshöfn:
Kl. 9:00 Íslenski fáninn dreginn að húni
Kl. 10:00 Frjálsíþróttamót fyrir 18 ára og yngri á frjálsíþróttavellinum. Þorlákshafnarbúar og gestir hvattir til að taka þátt – öllum velkomið að vera með! Umsjón með mótinu hefur Frjálsíþróttadeild Þórs
Kl. 13:00 Skrúðganga frá Grunnskólanum. Lúðrasveit Þorlákshafnar og fánaberar fara fyrir göngunni.
Kl. 13:30 Hátíðardagskrá í Skrúðgarði (Eða Íþróttamiðstöð ef þannig viðrar)
· Sigríður Lára Ásbergsdóttir bæjarfulltrúi setur hátíðina
· Lúðrasveit Þorlákshafnar leikur nokkur lög
· Hátíðarræða:
Ingvi Þorkelsson fyrrverandi framhaldsskólakennari
· Ávarp fjallkonu
· Afhending menningarverðlauna Ölfuss.
María Sigurðardóttir formaður menningarnefndar afhendir verðlaunin.
· Sigga Beinteins og María Björk skemmta börnum á öllum aldri með lögum úr Söngvaborg.
· Daníel Haukur Arnarsson syngur fyrir hátíðargesti
Kl. 14:30 Söngvarakeppni fyrir 8-12 ára krakka. Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrirfram
Kl. 14:30-17:00 Kaffisala á vegum Fimleikadeildar Umf. Þórs í Versölum. Verð: kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn 6-12 ára. Ókeypis fyrir börn undir grunnskólaaldri.
Kl. 20:00-22:00: Sundlaugarfjör fyrir 10-14 ára. Rennibrautarrallý og fleira skemmtilegt með tónlist og dúndur fjöri á vegum Fimleikadeildar og Félagsmiðstöðvar.
