Fleiri myndir með þessari frétt (0)


Salóme með myndina.
Árborg  |  29. júní 2009

Friðarhlaupið á Selfossi

Friðarhlaupið kemur á Selfoss fimmtudaginn 2. júlí nk. klukkan 11 og á sama tíma verður opnuð sýning á nokkrum myndum úr myndasamkeppninni „veröldin er garður í hjarta mínu” í gluggum Bóksafns Árborgar á Selfossi. Nemendur í 5. bekk Sunnulækjarskóla voru meðal þeirra fjölmörgu sem tóku þátt í myndasamkeppninni í vetur.

Mynd eins nemanda skólans, Salome Huldísar Sigurðardóttur, var valin af dómnefnd sem ein af þeim sjö myndum sem verður framlag Íslands í alþjóðlegri sýningu Vináttuhlaupsins í sumar.

Krakkar úr íþrótta- og útivistarskóla Árborgar og nemendur Sunnulækjarskóla taka á móti hlaupinu og verða viðstödd formlega opnun sýningarinnar. Við hvetjum sem flesta til að mæta við Bókasafn Árborgar á Selfossi klukkan 11.00 fimmtudaginn 2. júlí.