Athugasemdir lesenda (9)
- Bara fríkeypis
- ...eða hvað?
- ummhm
- Já, já.
- Þvælið.
- Flókið dæmi
- Einfallt dæmi
- Ruslagámar
- Sameining eða ekki sameining?
Er tímabært að sameina Árborg, Ölfus og Hveragerði í eitt sveitarfélag?
Er tímabært að sameina Árborg, Ölfus og Hveragerði í eitt sveitarfélag?
Það er löngu tímabært að sameina sveitarfélög enn frekar en orðið er. Sveitarfélög á Íslandi eru flest öreiningar sem eiga bágt með að halda úti þeirri þjónustu sem fólk gerir kröfur um nú á dögum. Þó ekki væri miðað nema út frá „lögbundinni þjónustu“ sveitarfélaga, þá er ljóst að einungis lítill hluti þeirra hefur bolmagn til sinna hlutverki sínu. Þegar miðað er við þá „grunnþjónustu“ sem íbúarnir ætlast til að fá, og sveitarfélögin berjast við að reyna að sinna, er ljóst að einungis örfá þau allra stærstu hafa möguleika á því að standa undir nafni.
Með hverju árinu aukast kröfurnar til sveitarfélaganna. Ríkisvaldið hefur velt fleiri og fleiri verkefnum af eigin herðum yfir á sveitarfélögin, án þess að veita þeim jafnhliða heimildir til tekjuöflunar. Þetta er til minnkunar fyrir löggjafarvaldið. Fámenn sveitarfélög hafa enga möguleika til að bregðast við þessu. Þau hafa gripið til þess ráðs að stofna til samstarfs sín í milli, byggðasamlög og landshlutasamtök, til að verja hagsmuni sína og hjálpast að við að uppfylla þjónustukröfur og lagaskyldur. Þetta samstarf hefur gengið misvel, hagsmunir fara ekki alltaf saman og hver höndin er þá uppi á móti annarri. Til verða stjórnsýslueiningar, nokkuð dýrar í rekstri og stundum þungar í vöfum. Mjög erfitt er oft að taka á málum á þessum vettvangi og nauðsynlegar ákvarðanir „þynnast út“ í almennt snakk. Miklu nær væri að sveitarfélög, sem „neyðast til“ að vinna saman til að geta uppfyllt lagaskyldur sínar á ýmsum sviðum, sameinuðust í eitt, með eina yfirstjórn, styttri boðleiðir, skilvirkari stjórnsýslu.
Þó Árborg, Ölfus og Hveragerði séu reyndar með stærri sveitarfélögum á Suðurlandi, og ættu að hafa einna skásta möguleika á því að standa á eigin fótum í þessum landshluta, þá eru þau í margskonar samstarfi með fleirum, t.d. innan SASS og Héraðsnefndar Árnesinga. Samstarfsverkefnin skarast margvíslega og stundum rekst hvað á annars horn. Þessi þrjú sveitarfélög gætu sameinuð, með eina yfirstjórn, staðið sig miklu betur þegar á heildina er litið. Þó hugnast mér betur enn stærri sameining. Að mínu viti væri skynsamlegt fyrsta skref, ef ástæða er til að taka þetta í fleiri skrefum en þegar hafa verið tekin, að sameina að minnsta kosti alla Árnessýslu í eitt sveitarfélag.
Nú alveg nýlega var skrifað undir viljayfirlýsingu ríkisins og sambands sveitarfélaga um að færa málefni fatlaðra til sveitarfélaganna. Fleira mun fylgja í kjölfarið á næstu árum. Það eru eðlileg skref að færa ábyrgð á þjónustunni nær notendunum, til aukins og virkara lýðræðis, virkara eftirlits íbúanna og aukinnar gæða þjónustunnar. Stærri og öflugri sveitarfélög eru grunnforsenda fyrir því að vel takist til að þessu leyti.
Það er misskilinn heimóttarskapur að hanga í allt of smáum stjórnsýslueiningum. Segja má reyndar að þá sé ákvörðunarvaldið enn nær íbúunum; en ákvörðunarvald um hvað? Einingin má ekki vera svo lítil og vanmáttug að „stóru málin“ séu hvort eð er ákvörðuð annars staðar eða væru háð samningum eða samstarfi við aðra. Þá er nær að sameinast í „sjálfbærar einingar“ og hafa bein áhrif á ákvarðanatöku, með lýðræðislegum hætti.
Gylfi Þorkelsson,
bæjarfulltrúi í Árborg