Er tímabært að sameina Árborg, Ölfus og Hveragerði í eitt sveitarfélag?


Gylfi Þorkelsson
Kjartan Björnsson

Er tímabært að sameina Árborg, Ölfus og Hveragerði í eitt sveitarfélag?

Nei
Kannski síðar
Gylfi Þorkelsson
Kjartan Björnsson

Það er löngu tímabært að sameina sveitarfélög enn frekar en orðið er. Sveitarfélög á Íslandi eru flest öreiningar sem eiga bágt með að halda úti þeirri þjónustu sem fólk gerir kröfur um nú á dögum. Þó ekki væri miðað nema út frá „lögbundinni þjónustu“ sveitarfélaga, þá er ljóst að einungis lítill hluti þeirra hefur bolmagn til sinna hlutverki sínu. Þegar miðað er við þá „grunnþjónustu“ sem íbúarnir ætlast til að fá, og sveitarfélögin berjast við að reyna að sinna, er ljóst að einungis örfá þau allra stærstu hafa möguleika á því að standa undir nafni.
 
Með hverju árinu aukast kröfurnar til sveitarfélaganna. Ríkisvaldið hefur velt fleiri og fleiri verkefnum af eigin herðum yfir á sveitarfélögin, án þess að veita þeim jafnhliða heimildir til tekjuöflunar. Þetta er til minnkunar fyrir löggjafarvaldið. Fámenn sveitarfélög hafa enga möguleika til að bregðast við þessu. Þau hafa gripið til þess ráðs að stofna til samstarfs sín í milli, byggðasamlög og landshlutasamtök, til að verja hagsmuni sína og hjálpast að við að uppfylla þjónustukröfur og lagaskyldur. Þetta samstarf hefur gengið misvel, hagsmunir fara ekki alltaf saman og hver höndin er þá uppi á móti annarri. Til verða stjórnsýslueiningar, nokkuð dýrar í rekstri og stundum þungar í vöfum. Mjög erfitt er oft að taka á málum á þessum vettvangi og nauðsynlegar ákvarðanir „þynnast út“ í almennt snakk. Miklu nær væri að sveitarfélög, sem „neyðast til“ að vinna saman til að geta uppfyllt lagaskyldur sínar á ýmsum sviðum, sameinuðust í eitt, með eina yfirstjórn, styttri boðleiðir, skilvirkari stjórnsýslu.

Þó Árborg, Ölfus og Hveragerði séu reyndar með stærri sveitarfélögum á Suðurlandi, og ættu að hafa einna skásta möguleika á því að standa á eigin fótum í þessum landshluta, þá eru þau í margskonar samstarfi með fleirum, t.d. innan SASS og Héraðsnefndar Árnesinga. Samstarfsverkefnin skarast margvíslega og stundum rekst hvað á annars horn. Þessi þrjú sveitarfélög gætu sameinuð, með eina yfirstjórn, staðið sig miklu betur þegar á heildina er litið. Þó hugnast mér betur enn stærri sameining. Að mínu viti væri skynsamlegt fyrsta skref, ef ástæða er til að taka þetta í fleiri skrefum en þegar hafa verið tekin, að sameina að minnsta kosti alla Árnessýslu í eitt sveitarfélag.

Nú alveg nýlega var skrifað undir viljayfirlýsingu ríkisins og sambands sveitarfélaga um að færa málefni fatlaðra til sveitarfélaganna. Fleira mun fylgja í kjölfarið á næstu árum. Það eru eðlileg skref að færa ábyrgð á þjónustunni nær notendunum, til aukins og virkara lýðræðis, virkara eftirlits íbúanna og aukinnar gæða þjónustunnar. Stærri og öflugri sveitarfélög eru grunnforsenda fyrir því að vel takist til að þessu leyti.

Það er misskilinn heimóttarskapur að hanga í allt of smáum stjórnsýslueiningum. Segja má reyndar að þá sé ákvörðunarvaldið enn nær íbúunum; en ákvörðunarvald um hvað? Einingin má ekki vera svo lítil og vanmáttug að „stóru málin“ séu hvort eð er ákvörðuð annars staðar eða væru háð samningum eða samstarfi við aðra. Þá er nær að sameinast í „sjálfbærar einingar“ og hafa bein áhrif á ákvarðanatöku, með lýðræðislegum hætti.

Gylfi Þorkelsson,
bæjarfulltrúi í Árborg


Athugasemdir


#9. Högni Sigurjónsson | 23.03.2009, 16:05
Bara fríkeypis
Sæll aftur Gylfi, ég sakna þess að ekki fleyri tjái sig, það voru nú ekki bara gámarnir en hvað með það, þetta erum við nágrannar ykkar að horfa á og búin að vera að horfa á í nokkur ár, við Hvergerðingar þurfum ekki strætó innan bæjar svo ekki er það vandamál og við eigum flott gámasvæði svo ekki er það vandamál, en Ölfusingar myndu örugglega þiggja strætó innan sveitarinnar allrar, eða er ekki svo með aðra sveitunga Árborgar eins og þéttbýlinga að þeir eru með fríkeypis strætóferðir? Bara svona í framhjáhlaupi Gylfi það kemur ekkert ókeypis frá yfirvöldum.Ég segi ennþá nei, en áskil mér rétt til að breyta ef mér lærist að það sé skynsamlegt.
#8. Gylfi Þorkelsson | 23.03.2009, 15:03
...eða hvað?
Það var og. Ég var að bíða eftir því að þú upplýstir hverjir hefðu lent undir valtaranum, og þar kom það. Ekki veit ég hvort ruslagámarnir, fyrrnefndir, voru það sem þú hafði í huga varðandi Eyrbekkinga og Stokkseyringa? En varðandi þau mál sérstaklega þá hafa verið strafrækt þrjú gámasvæði í sveitarfélaginu. Nú setndur fyrir dyrum að loka þeim öllum og opna eitt nýtt og fullkomið svæði, öllum íbúum sveitarfélagsins til hagsbóta. Ég er efins um það að Eyrarbakkahreppur og Stokkseyrarhreppur, hefðu þeir lifað áfram sínu fyrra lífi, hefðu ráðist í það, eða haft til þess bolmagn, að tryggja þjónustu af því tagi sem þeir munu nú fljótlega fá á þessu sviði. Þetta gildir á fleiri sviðum. Til dæmis varðandi almenningssamgöngur, sem þeir njóta nú, ókeypis, vegna þess að þeir eru hluti af stærra og öflugra sveitarfélagi.

Gylfi
#7. Högni Sigurjónsson | 23.03.2009, 12:55
ummhm
Sæll aftur Gylfi já já mér finnst einmitt vanta að fá einhver sjónarmið með athvæðunum og gaman væri að fleiri gerðu grein fyrir atkvæði sínu, ég tel víst að leyfi fossseta sé fyrir hendi.
Ég er enn á sömu skoðun og Kjartan með t.d. að sameina frekar sýsluna alla, þó væri ég til í að skoða þá sameiningu sem við tökumst á um ef að við fengjum stjórnsýsluna þ.e. ráðhúsið í Hveragerði og áhaldahúsið í Þorlákshöfn burt séð frá því hvað einhverjum finnst skynsamlegt eða öðrum óskynsamlegt, ég get nefnilega ekki betur séð enn að íbúar á Stokkseyri og Eyrabakka kannist við téðann valtara og bara ekki nokkur áhugi okkar Hvergerðinga eða Ölfusinga til að kinnast honum.
#6. Gylfi Þorkelsson | 23.03.2009, 12:05
Já, já.
Sæll enn, Högni.
Nú fara þetta að verða heljarinnar ritgerðir okkar í millum, og bara gaman að því.
Í fyrsta lagi lít ég ekki fyrst og fremst og sérstaklega á mig sem Selfyssing. Ég bý um þessar mundir í Sv.fél. Árborg og er reyndar staðsettur á Selfossi. Ég er alinn upp á Laugarvatni, hef búið í Reykjavík, í Sandgerði, Keflavík og uppi í Biskupstungum. Ég hef því sem betur fer orðið þeirrar gæfu aðnjótandi í lífinu að hafa hleypt heimdraganum og lít ekki á byggðir landsins út frá "þjóðernisöfgasjónarmiðum". Þó játa ég það að mér þykir alltaf fremur vænt um Laugardalinn. Það tengist æskuminningunum og fjölskyldunni. En að hann sé eitthvað betri eða merkilegri en aðrar byggðir, það samþykki ég ekki. Allir staðir hafa til síns ágætis nokkuð og ef það yrði niðurstaða sameiningarviðræðna að skynsamlegt og hagkvæmt væri að "ráðhús" og meginstjórnsýslan væri í Hveragerði, miðstöð framkvæmdasýslunnar í Þorlákshöfn og gámasvæði með flokkunarstöð á Selfossi, svo dæmi séu tekin, þá myndi ég samþykkja það án umhugsunar.

Kveðja,
Gylfi
#5. Högni Sigurjónsson | 22.03.2009, 22:41
Þvælið.
Sæll Gylfi og takk fyrir svarið, það er rétt að það hefur ekki allstaðar verið þannig að minni sveitafélögin hafi bara orðið undir valtara heldur líka er eins og hann hafi valtað yfir þau aftur í bakaleiðinni.
Þetta er ekki einfallt, bæði er þetta tilfinngamál og svo hagsmunamál og þá bæði að sameina og að sameina ekki.
Gylfi! Myndir þú sem Selfyssingur samþykkja sameiningu með þeim skilyrðum að hluti af stjórnsýslunni færi í Hveragerði og restin í Þorlákshöfn t.d bæjarskrifstofurnar í Hveragerði og áhaldhúsið í Þorlákshöfn?
Það væri sem ég sæi Möllerinn sameina Húsavík og Akureyri og eða bara höfuðborgarsvæðið.
#4. Gylfi Þorkelsson | 22.03.2009, 21:25
Flókið dæmi
Sæll, Högni.

Ég held að ef dæmið væri skoðað ofan í kjölinn, af sanngirni, kæmi í ljós að þetta sé nú ofmælt, þetta með valtarann. En sjálfsagt er hægt að finna dæmi um hluti sem hafa ekki gengið eins vel og best væri á kosið, jafnvel illa. En að allt sé svart og ómögulegt, engir kostir sjáanlegir, það er auðvitað ósanngjörn og hlutdræg lýsing.

Gylfi
#3. Högni Sigurjónsson | 22.03.2009, 12:18
Einfallt dæmi
Gylfi takk fyrir að svara,en þetta var einfallt dæmi úr reynslubrunni nágranna Selfoss, ertu til í sameiningu og öll þjónustann færi undir Ölfus og þið Selfyssingar yrðuð m.a. að fara með rusl í ruslagáma í Þorlákshöfn og eða auðvitað aðra þjónustu "hins nýja sameinaða" sveitafélags. Það er staðreynd að þar sem sameiningar misstórra sveitafélaga hafa orðið hafa minni sveitafélögin orðið undir valtara. Svo ég segi nei.
#2. Gylfi Þorkelsson | 21.03.2009, 23:17
Ruslagámar
Ef málið snýst bara um ruslagáma og staðsetningu þeirra, þá er þetta einfaldara mál en ég hugði! Drífum þá sameiningar af stað.
#1. Högni Sigurjónsson | 21.03.2009, 22:34
Sameining eða ekki sameining?
Þetta er eilífðarspurning. Ég er alveg sammála Kjartani Björnssyni, en spurning hvort að Gylfi væri til í að Árborg mundi sameinast Hveragerði eða Ölfusinu og stjórnsýslan, áhaldahúsið ofl.væri þar, sem sagt þær stofnanir sem skipta máli til að missa ekki ruslagámana svo eitthvað úr reynslubanka sameininga sé nefnt?
Þetta eru spurningar sem við í minni sveitafélögunum spyrjum okkur að ,,verða ruslagámarnir fluttir á Selfoss" með öðrum orðum verður valtað yfir okkur?

Skrifa athugasemd


disclaimer - Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Pellentesque lectus mauris, iaculis elementum, porta nec, fermentum iaculis, massa. Phasellus accumsan lorem id ipsum. Vestibulum sit amet neque. Nam sed erat. Donec luctus enim ut odio mattis dapibus. Morbi viverra, metus dictum sollicitudin molestie, mauris lectus accumsan nisl, in venenatis ipsum lorem ut nisl. Ut sem magna, pretium ut, posuere ut, gravida nec, neque. Vestibulum dolor quam, rhoncus ut

* Nafn:
* Netfang:
* Subject:
* Athugasemd:
* Ruslpóstvörn:
Hvað eru 4 + 5

Fleiri umdeild mál


Er rétt að færa Suðurlandsveg frá miðbænum á Selfossi?
Högni Sigurjónsson Landsveit
Sigmundur Sigurgeirss. Selfossi